Upplýsingar um fjölskyldupersónuvernd fyrir börn

Við hjá Apple leggjum mikla áherslu á að vernda börn. Við leggjum áherslu á gagnsæi og að veita foreldrum nauðsynlegar upplýsingar til að þeir geti ákveðið hvað sé barninu fyrir bestu. Við leggjum mikla vinnu í að bjóða upp á stjórntæki fyrir foreldra sem auðvelt er að nota og sérstilla. Þegar þú stofnar Apple-reikning fyrir barnið þitt gerirðu því kleift að njóta eiginleika Family Sharing með þér og öðrum fjölskyldumeðlimum. Barnið þitt getur deilt tónlist, kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, bókum, forritum, myndum, dagatölum, staðsetningu og fleiru með þér og fjölskyldunni. Með sínum eigin Apple-reikningi getur barnið einnig notið allrar þeirrar þjónustu og alls efnis sem er í boði fyrir þau sem eru með Apple-reikning.

ATHUGAÐU: ÞESSAR UPPLÝSINGAR EIGA EKKI VIÐ UM GAGNASÖFNUNARAÐFERÐIR FORRITA ÞRIÐJU AÐILA, Þ.M.T. ÞRÓUNARAÐILA FORRITA ÞRIÐJU AÐILA. ÁÐUR EN BARNIÐ ÞITT KAUPIR EÐA HLEÐUR NIÐUR FORRITUM ÞRIÐJA AÐILA ÆTTIR ÞÚ AÐ LESA SKILMÁLA, STEFNUR OG UPPLÝSINGAR UM VINNUBRÖGÐ SLÍKRA ÞRIÐJU AÐILA TIL AÐ VITA HVAÐA GÖGNUM ÞEIR KUNNA AÐ SAFNA FRÁ BARNINU ÞÍNU OG HVERNIG SLÍK GÖGN KUNNA AÐ VERA NOTUÐ.

Apple-reikningur barnsins þíns

Með Apple-reikningnum sem þú stofnar fyrir barnið þitt getur það nýtt sér þá eiginleika og þjónustu Apple sem nota Apple-reikning. Til dæmis getur barnið þitt:

  • Hringt og svarað FaceTime-myndsímtölum og -símtölum.
  • Búið til og deilt efni eins og myndum, myndskeiðum, hljóðskilaboðum, glósum, skjölum, tenglum, spjöldum og texta með Camera, Photos, Messages, Freeform, Mail og öðrum forritum frá Apple.
  • Búið til, deilt og unnið með öðrum í efni á borð við skjöl, skrár, spjöld, myndaalbúm, dagatölum, kynningum og verkefnalistum í gegnum iCloud-deilingu. Til dæmis gera samnýtt dagatöl þér og barninu þínu kleift að deila liðnum og væntanlegum viðburðum með öðrum fjölskyldumeðlimum. Allt eftir völdum stillingum getur þetta falið í sér nafn barnsins og samskiptaupplýsingar þess, ef þessar upplýsingar hafa verið færðar inn.
  • Deilt nákvæmri staðsetningu sinni með fjölskyldumeðlimum og vinum í gegnum Find My, Messages og önnur forrit sem notast við staðsetningarþjónustu og notað Find My til að finna studd tæki og aukabúnað. Ef þú deilir nákvæmri staðsetningu barnsins þíns með fjölskyldunni þinni þegar þú býrð til Apple-reikning barnsins þíns eða setur upp Apple Watch barnsins þíns með Apple Watch for Your Kids verður nákvæmri staðsetningu barnsins þíns deilt með öllum fjölskyldumeðlimum, þar með talið öllum nýjum meðlimum sem bætt er við síðar. Barnið þitt getur breytt staðsetningardeilingarstillingum nema það sé takmarkað í Screen Time eða Family Sharing.
  • Fengið aðgang að, straumspilað og sótt efni og áskriftir sem aðrir fjölskyldumeðlimir hafa keypt, þar á meðal tónlist, kvikmyndir, sjónvarpsþætti, hlaðvörp, forrit og kaup í forritum, bækur, Apple Arcade, Apple Music, Apple News+ og Apple TV.
  • Gengið frá kaupum og sótt frítt efni í Apple Music, App Store, Apple Books og Apple TV-forritinu, gengið frá kaupum í forritum og gerst áskrifandi að þjónustu á borð við Apple Arcade, Apple Creator Studio, Apple News+, Apple TV og Apple Music, allt eftir því hvaða stillingar þú velur í Ask to Buy.
  • Fengið ráðleggingar í Apple Music og Apple TV-forritinu.
  • Flutt tónlist og lagalista úr annarri tónlistarþjónustu yfir í Apple Music.
  • Spilað leiki og átt samskipti við aðra notendur Game Center og Apple Games-forritsins og deilt upplýsingum, svo sem gælunafni, notandamynd og vinum barnsins í Game Center.
  • Greitt og tekið við greiðslum í gegnum þjónustu Apple Pay á borð við Transit og Apple Cash ef þú setur upp slíka reikninga og geymt og notað passa á borð við miða og brottfararspjöld í Wallet-forritinu.
  • Fylgst með og deilt heilsufarsupplýsingum eins og hjartslætti, blóðþrýstingi eða næringu og upplýsingum um hreysti og hreyfingu. Ef barnið þitt notar Apple Watch getur það valið að deila æfinga- og hreyfingargögnunum sínum með öðrum notendum Apple Watch gegnum Activity Sharing, þar á meðal upplýsingum um skrefafjölda og vegalengd sem það fer á einum degi. Ef barnið notar Health-forritið getur það einnig byrjað að deila tilteknum heilsufarsupplýsingum með öðrum notendum Health-forritsins í Contacts í gegnum Health Sharing, þar á meðal undirflokki með heilsufarssögu sinni og væntanlegum uppfærslum sem tengjast gögnunum sem barnið þitt deilir. Barnið þitt getur enn haldið áfram að deila upplýsingum með öðrum notanda Health-forritsins eftir að viðkomandi notanda hefur verið eytt úr Contacts.
  • Ef barnið þitt er með aðgang hjá þátttökustofnun í heilbrigðisþjónustu sem styður eiginleikann Share with Provider í Health-forritinu, getur það deilt völdum flokkum heilsufarsupplýsinga, svo sem hreyfingu, hjartslætti og niðurstöðum rannsókna, úr iPhone eða iPad með heilbrigðisstarfsmanninum sínum. Til að gera þetta þarf það að skrá sig inn á reikninginn sinn með aðgangsupplýsingunum sínum. Apple og tæki barnsins vista ekki né hafa aðgang að þessum aðgangsupplýsingum. Barnið þitt hefur fulla stjórn yfir gögnunum sínum og getur breytt því hverju það deilir, eða hætt að deila, hvenær sem er.
  • Geymt myndir, myndskeið, skjöl, spjöld, glósur, tengiliði, dagatöl, póst, öryggisafrit og önnur forritagögn, þ.m.t. leikjavirkni í Apple Arcade, í iCloud og notað eiginleika iCloud+ eins og Apple Invites.
  • Haft samband við Apple Support vegna úrræðaleitar, stuðnings og þjónustu.
  • Deilt, tekið á móti eða hlaðið niður flýtileiðum af vefnum.

Stjórntæki fyrir foreldra

Family Sharing gerir þér kleift að deila efni að þínu vali á hnökralausan máta með öðrum fjölskyldumeðlimum. Aftur á móti kann það að henda að þú viljir takmarka aðgang barnsins að tilteknu efni eða efnisveitum sem í boði eru fyrir aðra fjölskyldumeðlimi. Til að auðvelda þér að stjórna aðgangi barnsins að þjónustu og eiginleikum Apple-reikningsins höfum við sett inn nokkrar tegundir stjórntækja fyrir foreldra. Þar á meðal eru Screen Time, Restrictions og Ask to Buy-eiginleikinn í Family Sharing. Stjórntæki fyrir eyðslu og móttöku fjármagns í gegnum þjónustu Apple Pay á borð við Apple Cash eru í boði í Wallet.

Screen Time

Ef þú eða barnið þitt notar iOS 12 eða nýrri útgáfu, iPadOS eða macOS geturðu notað eiginleikann „Screen Time“ til að stilla tímamörk fyrir notkun barnsins þíns á iOS-, iPadOS- eða macOS-tækjum sem það er skráð inn á. Þú getur til dæmis stillt dagleg tímamörk fyrir flokka forrita með því að nota App Limits, og stillt tiltekna tíma þar sem skjátími er ekki í boði með Downtime; takmarkað aðgang að tilteknum eiginleikum, forritum eða flokkum forrita; sett takmörk á kaup eða niðurhal efnis og stillt aldurstakmarkanir fyrir kvikmyndir, tónlist, bækur og annað efni. Til að fá frekari upplýsingar skaltu fara í Nota Screen Time til að stjórna iPhone eða iPad barnsins og Setja upp Screen Time fyrir barn á Mac. Í visionOS er ekki víst að tilteknar takmarkanir á Screen Time, svo sem App Limits og Downtime, séu í boði, og þær munu ekki flytjast yfir á barnareikninginn sem er skráður inn á Apple Vision Pro, jafnvel þótt þær hafi verið notaðar til að setja takmörk fyrir viðkomandi barnareikning í iOS, iPadOS eða macOS. Frekari upplýsingar eru á Use Screen Time á Apple Vision Pro.

Ef þú notar Apple Watch for Your Kids og hefur virkjað Schooltime getur þú ákvarðað hvenær notkun fjölskyldumeðlima á tilteknum eiginleikum Apple Watch er takmörkuð. Ef fjölskyldumeðlimur opnar úrið sitt þegar Schooltime-stillingin er virk geturðu séð hvenær það var opnað í Apple Watch-forritinu í iPhone-símanum þínum. Þessar upplýsingar eru sendar til Apple með tvíhliða dulritun en þær verða aðeins bundnar við Apple-reikninginn þinn svo Apple geti veitt upplýsingar um opnanir.

Takmarkanir

Ef þú eða barnið þitt notar eldri útgáfu af iOS en iOS 12 getur þú valið takmarkanir fyrir barnið þitt í öllum iOS- eða iPadOS-tækjum sem það notar eða í Apple TV með því að fara í Settings > General > Restrictions. Með þessum stillingum geturðu takmarkað eiginleika á borð við FaceTime, Camera og Safari, fjölspilun fyrir forrit sem eiga í samskiptum við Game Center og tiltekin samfélagsmiðlaforrit og einnig valið viðeigandi efni fyrir barnið þitt. Þetta er mikilvægt skref til að stjórna því sem barnið þitt gerir í Apple-tækjum. Þú getur einnig valið takmarkanir fyrir þjónustu Apple á borð við Apple TV-forritið í tækjum þriðju aðila og tiltekið efni á vefnum í Settings. Þessar takmarkanir og þetta foreldraeftirlit ætti að vera stillt í hverju einasta tæki sem barnið þitt notar.

Family Sharing og Ask to Buy

Family Sharing gerir þér kleift að deila kaupum, áskriftum og fleiru með allt að fimm fjölskyldumeðlimum sem þú útnefnir með því að nota Apple-reikninga þeirra. Ask to Buy er eiginleiki í Family Sharing sem gerir þér kleift að skoða og samþykkja niðurhal sem barnið þitt biður um, þar á meðal kaup í forritum og ókeypis niðurhal, í App Store, iTunes Store eða Apple Books. Með Ask to Buy geturðu veitt undanþágur fyrir forrit, sem gerir barninu þínu kleift að biðja um að hlaða niður eða kaupa forrit sem hefur hærra aldursviðmið en þú hefur stillt fyrir barnið. Þegar barnið þitt sendir slíka beiðni geturðu valið um að samþykkja hana eða hafna henni. Ask to Buy er virkjað sjálfkrafa fyrir alla notendur undir 13 ára aldri (eða samsvarandi lágmarksaldri í viðkomandi lögsagnarumdæmi) sem er bætt við fjölskyldu. Ef þú slekkur á Ask to Buy fyrir barnið færðu eingöngu upplýsingar um kaup, þar á meðal kaup í forritum, í App Store eða iTunes í kvittun með tölvupósti (send einum til þremur sólarhringum eftir kaup) eða á kreditkortayfirlitinu þínu. Frekari upplýsingar eru í Samþykkja það sem krakkar kaupa með Ask to Buy.

Hafa skal í huga að forrit sem keypt eru í gegnum áætlun okkar fyrir magninnkaup, eru sótt aftur eða sótt með innlausnarkóða falla mögulega ekki undir takmarkanir Ask to Buy.

Apple-reikningur stofnaður fyrir barnið þitt

Til þess að stofna Apple-reikning fyrir barnið þitt þarftu fyrst að samþykkja þessar upplýsingar um fjölskyldupersónuvernd fyrir börn („upplýsingar“). Persónuverndarstefna Apple og persónuverndarupplýsingar sem eiga við um tiltekna vöru, sem finna má á apple.com/legal/privacy/data, eru einnig hluti af þessu skjali með tilvísun. Ef ósamræmi er á milli persónuverndarstefnu Apple eða persónuverndarupplýsinga sem eiga við um tilteknar vörur og þessara upplýsinga skulu skilmálar þessara upplýsinga vera rétthærri.

Til að uppfylla COPPA (lög um persónuvernd barna á netinu) og samskonar lög í öðrum lögsagnarumdæmum, ef við á, sem stjórna söfnun persónuupplýsinga frá börnum, getur verið að Apple grípi til frekari ráðstafana til aðstoðar við að staðfesta að notandinn sem veitir heimildina fyrir stofnun Apple-reiknings barnsins sé foreldri eða forráðamaður viðkomandi barns. Í þessum lögsagnarumdæmum gætirðu t.d. sömuleiðis verið beðið um að þú staðfestir núverandi greiðslumáta þinn í iTunes, iCloud eða Apple Store. Allt eftir greiðslumáta getur þetta verið gert með því að gefa upp öryggisnúmerið á greiðslukortinu eða með svipaðri staðfestingaraðferð. Þú gætir einnig haft þann valkost að staðfesta aldur þinn með því að nota skilríkin þín í Wallet eða staðfesta með Apple-reikningnum þínum.

Við biðjum um þessar upplýsingar og staðfestum að þú sért umsjónarmaður fjölskyldunnar eða foreldri/forráðamaður áður en við fáum samþykki þitt fyrir söfnun persónuupplýsinga barnsins þíns.

Við munum ekki meðvitað safna, nota eða veita persónuupplýsingar frá barninu þínu án þíns leyfis sem foreldri sem hægt er að staðfesta nema undantekning frá COPPA, eða viðeigandi undantekning samkvæmt sambærilegum lögum í öðrum lögsagnarumdæmum eigi við. Þegar þú hefur lesið þessar upplýsingar og persónuverndarstefnu Apple og persónuverndarupplýsingar sem eiga við um tilteknar vörur og veitt sannprófanlegt samþykki sem foreldri geturðu stofnað Apple-reikning fyrir barnið þitt. Barnið þitt getur notað sinn eigin Apple-reikning til að nota þá eiginleika og þjónustu Apple sem notast við Apple-reikning, nema þá sem þú hefur takmarkað í Screen Time, Restrictions eða Family Sharing. Hinsvegar er ekki hægt að fjarlægja reikning barnsins úr fjölskyldunni þinni nema Apple-reikningi barnsins sé eytt, það verði 13 ára (eða nái samsvarandi lágmarksaldri í viðkomandi lögsagnarumdæmi) eða þú flytjir það yfir á aðra fjölskyldu. Þegar barnið þitt verður 13 ára (eða nær samsvarandi lágmarksaldri í viðkomandi lögsagnarumdæmi) kann það að geta haft sinn eigin reikning án tengingar við Family Sharing ef tiltekin skilyrði eru uppfyllt.

Söfnun persónuupplýsinga

Stofnun reiknings fyrir barn

Hluti af því að stofna Apple-reikning fyrir barnið þitt felst í að veita upplýsingar sem þarf til að stofna reikning, sem geta m.a. verið fullt nafn barnsins þíns, fæðingardagur, netfang, aðgangsorð, svör við þremur öryggisspurningum, símanúmer og búsetuland. Fæðingardagur barnsins þíns verður notaður til að ákvarða gjaldgenga þjónustu og leggja til foreldraeftirlit.

Notkun á þjónustu Apple með reikningi barns

Apple kann að safna persónuupplýsingum sem tengjast notkun barnsins þíns á þeim eiginleikum og þjónustu Apple sem lýst er hér að ofan, með fyrirvara um þær stillingar foreldraeftirlits sem þú hefur valið og eins og lýst er í persónuverndarstefnu Apple.

Sem dæmi má nefna að ef barnið þitt notar samskipta-, deilingar- eða samvinnueiginleika Apple gæti það gert persónuupplýsingar sínar aðgengilegar öðrum notendum, með fyrirvara um þær takmarkanir sem þú hefur stillt. Þessar takmarkanir geta meðal annars falið í sér takmörk á því við hvern barnið þitt getur átt samskipti á leyfilegum skjátíma í gegnum forrit á borð við Phone, FaceTime og Messages, auk Allowed Apps & Features til að fjarlægja forrit á borð við Mail, AirDrop og Safari af heimaskjá iOS-tækis barnsins þíns.

Við kunnum að safna öðrum upplýsingum frá barninu þínu sem í einhverjum tilvikum teljast vera persónuupplýsingar samkvæmt COPPA. Þegar barnið hefur skráð sig inn á Apple-reikninginn sinn kunnum við til dæmis að safna upplýsingum um tækisauðkenni, vafrakökur, IP-tölur, landfræðilegar staðsetningar og tímabelti þar sem Apple-tækið er notað. Við kunnum einnig að safna upplýsingum um notkun barnsins á vefsvæðum okkar, forritum, vörum og þjónustu, þ. á m. efni frá utanaðkomandi þróunaraðilum. Frekari upplýsingar um söfnun okkar á upplýsingum er að finna í persónuverndarstefnu Apple.

Í ákveðnum tilfellum, svo sem þegar barnið þitt er ekki með aðgang, gætum við safnað viðvarandi auðkenni án annars konar persónuupplýsinga í þeim tilgangi að veita þjónustu eða eiginleika sem barnið þitt gæti notað.Í slíkum tilfellum mun Apple grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að auðkennið ásamt tengdum upplýsingum (svo sem leitar- og áhorfsferli) sé ekki notað eða gert opinbert í tilgangi sem ekki tengist þjónustunni eða eiginleikanum, eða er ekki heimilt samkvæmt gildandi lögum. Sem dæmi má nefna að í Apple TV-forritinu söfnum við auðkenni ef þú býrð til prófíl til þess að bjóða upp á upplifun sem hæfir aldri. Fáðu frekar upplýsingar um prófíla í Apple TV forritinu á apple.com/legal/privacy/data/en/apple-tv-app. Þú gætir átt þess kost að tengja þetta auðkenni við barnið þitt með því að stofna Apple-reikning fyrir það. Sem hluti af því að stofna þennan reikning verða upplýsingarnar sem tengjast þessu auðkenni (eins og það sem horft var á) tengdar við Apple-reikning barnsins þíns. Upplýsingarnar verða þá meðhöndlaðar eins og lýst er hér.

Notkun persónuupplýsinga

Eins og fram kemur í persónuverndarstefnu Apple kann Apple að nota upplýsingar sem það safnar frá barninu þínu til að senda mikilvægar tilkynningar og senda upplýsingar, tilkynningar um vörur og þjónustu; útvega þjónustu, stuðning og efni; og bæta vörur sínar, efni og þjónustu. Til dæmis kunnum við að nota aldur barnsins þíns til að veita viðeigandi upplýsingar um persónuverndarréttindi þess og foreldraeftirlit og við kunnum að nota aldur barnsins þíns og hvers kyns efnistakmarkanir í forritum sem þú hefur sett til að útvega viðeigandi efni fyrir aldur þess í forritunum okkar. Ef kveikt er á aldursbili fyrir forrit verður fæðingardagur barnsins notaður til að ákvarða viðeigandi aldursbil til að deila með þróunaraðilum, með fyrirvara um heimildirnar sem þú hefur stillt fyrir deilingu. Við kunnum einnig að nota upplýsingar frá barninu innanhúss, t.d. við eftirlit, gagnagreiningu og rannsóknir.

Við kunnum að nota, flytja og veita ópersónugreinanlegar upplýsingar í hvaða tilgangi sem er. Til dæmis kunnum við að taka saman og nota upplýsingar um notkun viðskiptavina á vefsvæði okkar, iCloud-þjónustu og iTunes Store og öðrum vörum okkar og þjónustu til að hjálpa okkur að veita viðskiptavinum gagnlegri upplýsingar og til að skilja hvaða hlutar vefsvæðisins, vörur og þjónusta vekja mestan áhuga. Samantekin gögn teljast vera ópersónugreinanlegar upplýsingar.

Slökkt er á stillingunni Personalized Ads og ekki er hægt að virkja hana fyrir Apple-reikning barns. Barnið þitt fær ekki auglýsingar, þar með taldar auglýsingar sem sniðnar eru að áhugamálum þess frá auglýsingavettvangi Apple í tækjum sem tengd eru Apple-reikningi barns og ómiðaðar (þ.e. út frá samhengi) auglýsingar í þeim tækjum. Að auki verður slökkt á stillingunni Allow Apps to Ask to Track (gefa forritum leyfi til að biðja um rakningu) og ekki er hægt að virkja hana. Forrit og auglýsendur fá ekki aðgang að auglýsingaauðkenninu frá stýrikerfinu og bera einnig ábyrgð á að fylgja viðmiðunarreglum Apple sem banna þeim að senda markauglýsingar, mæla auglýsingar eða deila upplýsingum með gagnamiðlurum.

Apple varðveitir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem það er nauðsynlegt til að uppfylla tilgang söfnunar þeirra, þar á meðal eins og lýst er í þessum upplýsingum og persónuverndarstefnu Apple, eða eins og krafist er samkvæmt lögum. Við munum varðveita persónuupplýsingar barnsins þíns í þann tíma sem þarf í þeim tilgangi sem lýst er í þessum upplýsingum og persónuverndarstefnu Apple. Við mat á varðveislutíma könnum við fyrst vandlega hvort nauðsynlegt sé að varðveita persónuupplýsingarnar sem var safnað og, ef varðveislu er krafist, leitumst við að varðveita persónuupplýsingarnar í eins skamman tíma og lög heimila.

Veiting persónuupplýsinga

Með því að nota Apple-reikninginn sinn, og í samræmi við takmarkanir þínar, getur barnið deilt persónuupplýsingum með þér og öðrum fjölskyldumeðlimum og öðrum notendum, samstarfsaðilum sem eru þriðju aðilar, og þjónustuveitum eftir því hvaða eiginleika og þjónustu frá Apple (eins og lýst er hér að framan) það notar.

Fjölskyldumeðlimir og aðrir notendur

Í Family Sharing kann upplýsingum um barnið þitt, þar á meðal um það sem það hefur keypt eða kemur til með að kaupa, sem og áskriftir, í App Store, iTunes Store, Apple Books eða Apple TV-forritinu, að vera deilt með öðrum fjölskyldumeðlimum ef kveikt er á deilingu kaupa. Í samræmi við þær takmarkanir sem þú hefur valið kann barnið einnig að velja að deila efni sínu, skjölum og gögnum með fjölskyldumeðlimum þínum í gegnum eiginleika og þjónustu Apple sem nota Apple-reikning, svo sem iCloud Photo Sharing, samnýtt dagatöl og áminningar, Find My og deilingu staðsetningar. Ef þú, barnið þitt eða annar fjölskyldumeðlimur skráir sig inn í Apple-tæki eins og Apple TV gæti tækið lagt til að öðrum fjölskyldumeðlimum sé bætt við með því að birta heiti Apple-reiknings þeirra og prófílmynd.

Ef barnið þitt notar samskipta-, deilingar- eða samvinnueiginleika Apple gæti það gert persónuupplýsingar sínar aðgengilegar öðrum notendum, með fyrirvara um þær takmarkanir sem þú hefur stillt.

Ef barnið þitt skráir sig þess utan inn á Apple-reikninginn sinn í tæki sem er í eigu þriðja aðila (t.d. í eigu vinar eða iPad í skólanum) geta aðrir sem nota það tæki sótt og skoðað upplýsingar barnsins, sem og samnýttar upplýsingar annarra fjölskyldumeðlima þinna, nema og þar til útskráningu Apple-reiknings barnsins í viðkomandi tæki er lokið.

Samstarfsaðilar sem eru þriðju aðilar

Öðru hverju kann Apple að starfa með þriðju aðilum til að veita þjónustu eða annað. Ef þú velur til dæmis að virkja Apple Cash-reikning fyrir barnið þitt verður upplýsingum þess deilt með Green Dot Bank, samstarfsbanka Apple, til að veita þér umbeðna þjónustu. Apple deilir persónuupplýsingum frá barninu þínu aðeins til að veita eða bæta vörur okkar og þjónustu; þeim verður ekki deilt með þriðju aðilum í markaðssetningarskyni.

Þjónustuveitur

Apple deilir persónuupplýsingum með fyrirtækjum sem veita þjónustu á borð við upplýsingavinnslu, afgreiðslu pantana viðskiptavina, afhendingu vara, umsjón og auðgun á gögnum viðskiptavina, þjónustu og stuðning við viðskiptavini, mat á áhuga barnsins á vörum okkar og þjónustu og framkvæmd rannsókna eða viðhorfskannana meðal viðskiptavina. Þessum fyrirtækjum ber skylda til að vernda upplýsingar barnsins þíns og þau kunna að vera staðsett hvar sem Apple starfar.

Annað

Nauðsynlegt getur verið, til dæmis vegna laga, lagaferla, málaferla og beiðna frá opinberum yfirvöldum í búsetulandi þínu eða öðrum löndum, að Apple veiti persónuupplýsingar þínar eða barnsins þíns. Við kunnum einnig að veita persónuupplýsingar um þig eða barnið þitt ef við teljum það nauðsynlegt eða viðeigandi af orsökum sem varða þjóðaröryggi, löggæslu eða annan almannahag.

Við kunnum einnig að veita persónuupplýsingar um þig eða barnið þitt ef við teljum það nauðsynlegt til að framfylgja skilmálum okkar eða vernda starfsemi okkar eða notendur. Aukinheldur, ef til endurskipulagningar, sameiningar eða sölu kemur, kunnum við að flytja allar persónuupplýsingar sem við höfum safnað til viðeigandi þriðja aðila.

Aðgangur, leiðrétting og eyðing

Til að nýta persónuverndarréttindi vegna upplýsinga um barn skal fara á gagna- og persónuverndarsíðu Apple á privacy.apple.com og skrá sig inn á reikning barnsins. Ef þú ert með spurningar geturðu haft samband við okkur hér:

apple.com/legal/privacy/contact

Eða með því að nota samskiptaupplýsingarnar hér að neðan:

Apple
One Apple Park Way
Cupertino, CA 95014
+1 408 996 1010

Samþykki fyrir söfnun Apple, notkun og veitingu persónuupplýsinga barnsins þíns

Með því að smella á „Samþykkja“ veitirðu Apple heimild til að safna, nota og veita upplýsingar barnsins þíns í samræmi við persónuverndarstefnu Apple, persónuverndarupplýsingum sem eiga við um tilteknar vörur og þessar upplýsingar.

Athugaðu: Þetta samþykki nær ekki til gagnasöfnunar þriðju aðila. Þriðju aðilar, þar með talið hönnuðir forrita sem fjölskyldumeðlimir sækja og barnið þitt hefur aðgang að í gegnum Family Sharing, sem kunna að safna, nota eða veita upplýsingar barnsins þíns þurfa að verða sér úti um aðskilið samþykkis foreldri sem hægt er að staðfesta. Við hvetjum þig til að biðja barnið um að ráðfæra sig við þig áður en það veitir slíkum þriðju aðilum aðgang að persónuupplýsingum sínum.

Athugaðu: Apple gefur reglulega út hugbúnaðaruppfærslur fyrir tækin okkar. Þegar við gerum það verða uppfærslurnar tiltækar til niðurhals í viðkomandi tæki, þ.m.t. tækjum þar sem barnið þitt kann að nota Apple-reikninginn sinn. Við mælum með að þú hefjir uppfærsluna og farir yfir og samþykkir gildandi skilmála, eins og fyrir iOS, macOS og visionOS, í þessum tækjum.

Ef þú ert með einhverjar spurningar eða athugunarefni um persónuverndarstefnu Apple, persónuverndarupplýsingar sem eiga við um tilteknar vörur eða þessar upplýsingar skaltu hafa samband við okkur á apple.com/legal/privacy/contact.

2026-04-22